Jæja já.... tíminn líður
ekkert smá hratt og ég ógeð léleg að blogga. En það er búið að
vera mjög svo skemmtilegt að fylgjast með æsispennandi umræðum á
kommentinu á síðustu færslu......umræðan snýst um
púður!!
En já, ég er búin að vera
léleg að blogga undanfarið en ég hef alveg fullt að segja frá. En
svo þegar það líður lengri og lengri tími þá verður alltaf erfiðara
og erfiðara að setjast fyrir framan tölvuna og byrja að skrifa
eitthvað. Og þegar það er liðinn svona langur tími þá hefur maður
svo margt til að segja frá og þá er hætta á því að færslurnar verði
of langar og enginn nennir að lesa þær! Okey, þessi
færsla er strax byrjuð að vera leiðinleg. Ég er
hætt.
Þetta er það sem ég er búin að
vera að gera síðustu vikur...:
* Kom fram á árshátíð Ársels
og Árbæjarskóla, ásamt mínu yndislega samstarfsfólki, í
fimleikabúningi (heilgalli...vibba ljótur) og dansaði. Við vorum
ógeðslega flott 
* Ekkert búin að sinna
skólanum í heilan mánuð vegna vinnu og félagslífs eftir vinnu hehe!
Ég er samt búin að framkvæma vettvangsverkefnið mitt fyrir skólann
Mjög sátt með það.
* Söng í leiðinlegum tónleikum
um þar síðustu helgi....guð minn góður hvað ég var og er fegin að
hafa ekki beðið neinn um að koma og hlusta. Hann/hún hefði dáið úr
leiðindum!
* Búin að þræða mörg bókasöfn
í Reykjavík í leit að einni helv**** bók fyrir skólann. Ekkert
gengur 
* Skellti mér í heimsókn til
Halldóru á laugardaginn með fullan poka af bakarísmat því ég var
svo hrikalega svöng....og líka hún. Spjölluðum heilmikið. Halldóra
er líka algjör hetja 
* Ég og Davíð fórum með okkar
crazy kids í bíó síðasta þriðjudag. VIÐ FÓRUM Í LÚXUS SAL og sáum
Walk the line. OMG HVAÐ ÞAÐ ER GEGGJAÐ AÐ VERA Í LÚXUS. Við bara
láum þarna með lappir upp í loft....jesús guð hvað þetta var
GEGGJAÐ. Framvegis fer ég bara í lúxus, annað er sko ekki hægt
Aðeins dýrara, en þess virði...ó já! Myndin var líka
rosalega góð. Mæli með henni. Mig langar á hana aftur.
* Búin að fara á góugleði
stórfjölskyldunnar. Það var fínt.
* Ég er búin að vera mjög
dugleg í fótboltanum síðustu vikur....alltaf að hlaupa, lyfta og ég
veit ekki hvað og hvað!
Massa gaman á æfingu í gær,
spiluðum bara og ég var sett á miðjuna, staða sem ég hef aldrei
getað spilað....verð alltaf tótallí lost.....en ég bara stóð mig
furðu vel og kom sjálfri mér töluvert á óvart hí hí 
* Reykjavíkurmótinu er lokið
og við lentum í 3. sæti.
Ég man ekki meira....enda er
það líka allt í lagi.....þetta er orðið ágætt!