Óvissuferð....Best
að fara að rifja upp síðustu daga.....um þarsíðustu helgi fórum
við stelpurnar í boltanum í brjálæðislega skemmtilega
óvissuferð. Byrjuðum daginn snemma, liðinu var skipt upp í 3
minni lið og fékk hvert lið ákveðið þema. Mitt lið fékk
kúrekaþema og áttum við því að vera í kúrekafötum allan daginn.
Ég, illinn, á náttúrulega engin kúrekaföt heldur bara lopapeysu
og gúmmístígvél....þannig að ég ákvað að taka kúlið á þetta
og vera bara íslenskur kúreki! Ég var auðvitað langflottust á
meðan afgangurinn af liðinu mínu var eins Jessica
Simpson úr Dukes of Hazzard!! En jæja, ef ég geri langa sögu
stutta þá vorum við í geggjuðum ratleik allan daginn en enduðum
svo í sumarbústað á Hellu. Þar var farið í pottinn
og partýast fram á nótt....sumir lengur en
aðrir!!
Skólinn....Ég
var í skólanum í síðustu viku, mánudag til miðvikudags. Það var
bara mjög fínt. Ég er svo fegin að loturnar eru ekki lengri en 3
dagar núna....finnst alveg glatað þegar þær eru í 4-5 daga því þá
missi ég svo mikið úr vinnu. En síðustu 3 vikur er búið að vera
brjálað að gera í skólanum...skilaði inn 4 verkefnum. Alveg
ömurlegt þegar öll verkefni hrúgast á sömu vikurnar og jafnvel sömu
dagana.
Æfingabúðir....
Um síðustu helgi fór ég í Nobili-æfingabúðir í Munaðarnesi.
Stoppaði nú reyndar stutt þar því ég kom seint um kvöldið á
föstudeginum og fór á laugardagskvöldið. Þó ég hafi verið stutt þá
skemmti ég mér mjög vel og okkur gekk bara nokkuð vel að æfa

Curling....
Ég er komin í curling-lið!! Ég, Erla, Þorbjörg, Bjarni og Davíð
stofnuðum liðið um daginn. Við æfum eiginlega ekki mikið en við
höldum alltaf töflufundi 2-3 í viku eftir kvöldvaktir í vinnunni.
Töflufundirnir eru haldnir á barnum Valla, sem heitir ekki einu
sinni Valli heldur eitthvað annað en við köllum hann samt Valla ok
skiluru!! Stefnum samt á að heimsækja Skautasvellið í Laugardal við
tækifæri og fá að taka eina æfingu í curling....allavega á þessu
ári 
Myndir frá óvissuferðinni eru hérna til
vinstri....leitið og þér munuð finna!